Arna Ýrr Sigurðardóttir
About
Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir er prestur í Grafarvogskirkju og hefur áralanga reynslu í að nota draumavinnu í sálgæslu og hefur sótt sér fræðslu og þjálfun í þeim efnum hjá reyndum aðilum. Þar að auki hefur hún aflað sér aukinnar menntunar og þjálfunar í sálgæslu og viðtalstækni.
Hún hefur haldið fjölda fyrirlestra um drauma og draumatúlkanir og staðið fyrir námskeiðum og hópavinnu um efnið.