Búkalú á Vagninum

Búkalú á Vagninum

Vagninn Restaurant, Hafnarstræti 19, 425 Flateyri Directions

Sat 04.07.2026 21:30

Búkalú á Vagninum

Margrét Maack snýr aftur á Vagn allra landsmanna með fullorðins fjöllistasýningu. Ný sýning, nýtt fólk, ný atriði!
Ásamt Margréti koma fram:

  • Dan the Man, er hægt að setja þennan þokka á flöskur?
  • Sirkustvíeykið Duo Decadence sem mun fá þig til að efast um þyngdaraflið
  • The Handy Scandies - handlagni hefur aldrei verið svona sexí
  • Hinn þokkafulli dragkóngur Jett Bent, þú getur ekki litið undan;
  • Burlesquedívan Rose Noir sem hefur tryllt Þjóðleikhúskjallarann bæði með Kjallarakabarett og í söngleiknum Kabarett, en hversdagssjálfið hennar hlaut á dögunum tvenn Grímuverðlaun fyrir dans- og sviðshreyfingar ársins;
  • Mr. Tombastic: Alvarleg vitleysa. Fagmannlega framkvæmd.

Heimsklassasýning á heimsklassa stað!

Vinsamlega athugið að svo öll sjái vel er takmarkaður fjöldi miða í sölu. Mælum líka með að mæta snemma og njóta frábærra veitinga.


Það er 20 ára aldurstakmark á þennan viðburð.

Performers