Grímur Sigurðsson tekur Sjallalögin!
Vamos AEY, Ráðhústorg 9, 600 Akureyri Directions
Sat 29.08.2026 15:00
Grímur Sigurðsson tekur Sjallalögin!
Grímur Sigurðsson er fæddur og uppalinn Akureyringur. Byrjaði tíu ára að spila á trompet í Lúðrasveit Barnaskóla Akureyrar. Hefur alla tíð síðan spilað á ýmis hljóðfæri og sungið með mörgum hljómsveitum, lengst þó með hljómsveit Ingimars Eydal eða samtals 14 ár. Annars má nefna Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar, Geisla, Flakkara, Hljómsveit Örvars Kristjánssonar ásamt mörgum fleiri.
Eftir að hann flutti á höfuðborgarsvæðið hefur hann spilað lengst af með Dansbandinu.
Seinustu árin hefur hann mest verið að koma fram með sitt hljómborð og sungið með. Þá eru gjarnan fjörugu Sjallalögin efst á lista.
Grímur mun spila fyrir gesti Akureyrarvöku á Ráðhústorgi í bland við fjölbreytta dagskrá!
Performers
-
Grímur Sigurðsson
Einsöngvari