Dúó Funi og Andri Eyvinds

Dúó Funi og Andri Eyvinds

Sumartónleikar Hallgrímskirkju í Saurbæ í Hvalfirði, Hallgrímskirkja í Saurbær í Hvalfjörður Directions

Sun 19.07.2026 16:00

Bára Grímsdóttir og Chris Foster eru dúóið Funi. Ásamt Andra Eyvinds, syni Báru, flytja þau lög af nýútkominni plötu þeirra sem nefnist GÁRUR. Textarnir fjalla um lífsbaráttu þjóðarinnar og hina einstöku og oft óblíðu náttúru landsins. Tónlistin er bæði gömul lög og ný og Andri hefur unnið hljóðmynd með upptökum úr náttúru landsins sem fléttað er inn í flutning tónlistarinnar. Bára og Chris syngja og leika á langspil, kantele, íslenska fiðlu, shruti og velska hornflautu (pibgorn). Þetta verður frumflutningur hljóðmyndarinnar ásamt tónlistinni og mega tónleikagestir eiga von á einstakri stemningu.

Bára ólst upp við kveðskap og söng foreldra sinna og afa og ömmu í Grímstungu í Vatnsdal og hefur helgað sig flutningi þjóðlegrar tónlistar. Hún er formaður Kvæðamannafélagsins Iðunnar og er starfandi tónskáld, kennari og kórstjóri og stýrir námskeiðum í tónlist og kveðskap.

Chris Foster ólst upp í suðvesturhluta Englands. Hann var vel þekktur sem flytjandi enskra þjóðlaga og sagnakvæða og síðan hefur hann víkkað sjóndeildarhringinn með því að tileinka sér íslenska þjóðlagatónlist.

Andri Eyvindsson er kennari, tónlistarmaður og trúbador. Hann lærði við Tónlistarskóla Vestmannaeyja og nam síðan hljóðtækni í SAE Amsterdam í Hollandi.

Bára og Chris hófu samstarf Siem dúóið FUNI árið 2001. Þau hafa blásið nýju lífi í margar perlur texta og tóna úr bókum og handritum. Þau útsetja sjálf öll lögin.

Andri hefur reglulega unnið með Báru og Chris, sem hljóðupptökumaður, söngvari og hljóðæraleikari.

Aðgangur 3.500 kr.

Performers