Draumalandið | Harpa býður heim
Norðurljós in Harpa, Austurbakki 2, 101 Reykjavik Directions
Sat 22.08.2026 17:00
Karlakórinn Fóstbræður kemur fram á tónleikum í Norðurljósum á Menningarnótt. Á efnisskrá eru sígildar kórperlur í bland við ástsæl dægurlög úr öllum áttum. Söngstjóri er Árni Harðarson.
Karlakórinn Fóstbræður hefur starfað samfellt frá haustinu 1916 og fagnar því 110 ára afmæli sínu um þessar mundir. Kórinn hefur um langt skeið verið einn eftirsóttasti og virtasti sönghópur landsins og komið fram við fjölbreytt tilefni, opinberar athafnir, hátíðir og menningarviðburði. Hann hefur pantað og frumflutt fjölmörg ný tónverk, margsinnis komið fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands, haldið í tónleikaferðalög víða um heim og sent frá sér rómaðar plötur. Vortónleikar Fóstbræðra hafa verið haldnir í Norðurljósum í Hörpu allt frá opnun hússins. Píanóleikari með kórnum er Steinunn Birna Ragnarsdóttir.
Performers
-
Fostbraedur Men's choir - Nordurljos HallGuest choir participating in the concert.
-
Árni Harðarson
Conductor of Fóstbræður since 1991, active in Icelandic music life as a composer and conductor.
-
Steinunn Birna RagnarsdóttirPíanóleikari.