Celebrating George Michael
Harpa | Eldborg, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Directions
Sat 21.11.2026 20:00
Celebrating George Michael
Tónlist George Michael, sem þú þekkir og elskar, flutt af listamanni fram í fingurgómana ásamt lifandi hljómsveit þar sem upprunalegur bassaleikari Wham! er innanborðs.
Sýningin Celebrating George Michael hefur farið sigurför um Bretland og Evrópu þar sem hún hefur heillað áhorfendur upp úr skónum, og nú er loksins komið að frumsýningu á Íslandi. Allt frá smitandi gleði Wham! til sálarskotinnar snilldar í sólóferli George Michael – þetta er sönn hátíð tónlistarinnar, minninganna og mannsins á bak við þær, flutt af fádæma nákvæmni af hinum einstaka Steve Mitchell.
Steve er víða talinn einn besti George Michael túlkandi í heiminum. Hann skilar kröftugri og innilegri frammistöðu þar sem hann endurskapar ekki aðeins lögin, heldur einnig töfra og andrúmsloft tónleika George Michael á ólíkum tímabilum. Þannig miðlar hann áfram tímalausri arfleifð eins mesta hæfileikamanns poppsögunnar.
Sannleiksgildi og gæði
Það sem gefur sýningunni aukið vægi er þátttaka Dave West, fyrrum bassaleikara Wham!, en hann vann náið með George Michael og Andrew Ridgeley við gerð fyrstu upptakna sveitarinnar á lögum á borð við Wham Rap, Careless Whisper og Club Tropicana.
Auk hans skipa hljómsveitina afburða tónlistarmenn sem hafa starfað með stórstjörnum á borð við Nile Rodgers & Chic, Brian May, Simply Red og Kylie Minogue. Ásamt fjölhæfum bakraddasöngvurum leiðir Steve Mitchell áhorfendur í gegnum ferðalag stútfullt af smellum – allt frá hressum dansgólfshitturum til angurværra ballaða sem gerðu George Michael að heimsstjörnu.
„Steve er með rödd George Michael, hún er svo ótrúlega lík að það er hreinlega óhugnanlegt. Lokaðu augunum og þú heyrir George Michael.“
— BBC
Performers
-
Hljómsveit
Hljómsveit sem fylgir söngvunum; meðlimir eru Sigfús Óttarsson (trommur), Kristján Grétarsson (gítar), Kjartan Valdemarsson (hljómborð) og Eiður Arnarsson (bassi).
-
Wham!
Julehits
-
ROXETTE - TRIBUTE
A who's who of Icelandic divas performs Roxette songs.