Svavar Knútur í Segull 67
Thu 02.07.2026 20:00
Svavar Knútur með tónleika í brugghúsi Seguls 67 á Siglufirði.
Svavar Knútur söngvaskáld rembist eins og rjúpa við staur að sýna Siglfirðingum og nærsveitungum viðeigandi frændrækni með tónleikahaldi og almennri viðveru og eru tónleikar hans á Segull 67 brugghúsi fimmtudagskvöldið 2. júlí hluti af þeirri viðleitni.
Það er auðvitað Svavari Knúti bæði ljúft og skylt að syngja lög og segja sögur fyrir Siglfirðinga, enda á hann bæði hlýjar bernskuminningar úr bænum og fjöldamarga ættingja og vini sem ætíð er gott að vitja.
Á tónleikunum eru allar líkur á því að Svavar Knútur fari, ólíkindatólið sem hann er, um víðan völl í söng og leik og sagnamennsku og verður hann því, á mótsagnakenndan hátt, fyrirsjáanlegur í ófyrirsjáanleika sínum.
Sjáumst í Segli 67 Brugghúsi kl. 20.00, fimmtudaginn 2. júní.
Miðaverð litlar 3.500 kr.
Miðar seldir í dyrunum og á stubb.is.