Nýnemadagar
Háskólinn á Akureyri, Norðurslóð 2, 600 Akureyri Directions
Mon 24.08.2026 09:00
✨ Ert þú að hefja nám við HA í haust? Dagana 24.-28. ágúst fara fram Nýnemadagar ✨
Á Nýnemadögum færð þú fræðslu um allt sem er til grundvallar háskólanámi og enginn nýnemi ætti að láta þá fram hjá sér fara.
Reynslan sýnir að þátttaka á Nýnemadögum auðveldar stúdentum að hefja nám; þeir eru fljótari að kynnast samnemendum sínum, vinnuumhverfinu, starfsfólki og húsnæði HA.
❤️ Nýnemum er skipt í hópa:
🤍 Mánudagur 24. ágúst: Kennsla skv. stundatöflu hjá nýnemum í Kennaradeild og lögreglufræði
🤍 Þriðjudagur 25. ágúst: Nýnemadagur Hug- og félagsvísindasviðs
🤍 Miðvikudagur 26. ágúst: Nýnemar á Hug- og félagsvísindasviði mæta í lotu skv. stundatöflu
🤍 Fimmtudagur 27. ágúst: Nýnemadagur Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasviðs | Nýnemapartý SHA fyrir alla nýnema og stúdenta um kvöldið
🤍 Föstudagur 28. ágúst: Nýnemar á Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasviði mæta í kennslu skv. stundatöflu
👉 Kynnið ykkur vel ítarlegri og sundurliðaða dagskrá Nýnemadaga hér:
https://www.unak.is/is/samfelagid/vidburdir/nynemadagar-2026
❗ Gagnlegar upplýsingar fyrir nýnema:
https://www.unak.is/is/nemandinn/nynemar/nynemi-101
🎉 VIÐ HLÖKKUM TIL AÐ SJÁ ÞIG Á NÝNEMADÖGUNUM!