Sycamore Tree

Sycamore Tree

Sumartónleikar Hallgrímskirkju í Saurbæ í Hvalfirði, , Hvalfjörður Directions

Sun 05.07.2026 16:00

Sycamore Tree er samstarf þeirra Ágústu Evu Erlendsdóttur, söngkonu og Gunnars Hilmarssonar gítarleikara. Þau hafa þróað sinn eigin stíl, þar sem þau segja að “stund með Sycamore Tree er eins og tónlistin þeirra, fallegt ferðalag sem snertir hjörtu hlustenda.”

Sycamore Tree hefur skipað sér sess meðal vinsælustu hljómsveita landsins með fjölda laga sem hafa hrifið áheyrendur á tónleikum þeirra og á útvarpsstöðvum. Í ár fagnar Sycamore Tree 10 ára afmæli og það er mikil gleði að fá þau til að halda hluta afmælisfagnaðarins hér við Hvalfjörðinn.

Á tónleikunum mun sveitin fara í gegnum helstu lög ferilsins, segja sögurnar og einnig flytja nýtt efni. Tíu ár af tónlist, minningum og lögum sem hafa fylgt hlustendum um land allt.

Aðgangur 3.500 kr.

Performers

  • Sycamore Tree
    Sycamore Tree

    Ágústa Eva and Gunni Hilmars along with a lovely group will play their songs and many favorite Christmas songs.