Purrkur Pillnikk
Vagninn Restaurant, Hafnarstræti 19, 425 Flateyri Directions
Fri 10.07.2026 22:00
Það er sannur heiður að tilkynna það að Purrkur Pillnikk ætlar að spila tónleika á Vagni allra landsmanna. Purrkinn þekkjum við öll og ef við þekkjum hann ekki, þá þekkjum við hann samt. Allir hafa heyrt þessi lög og þetta er besta hljómsveit sem Ísland hefur alið.
Ég ætla að vitna hér í strákana í Purrkinum.
"Við erum spenntir fyrir að spila á Lista Vestrinu í júlí því við höfum ekki komið á Vestfirði síðan 1981 og þá á Ísafjörð. Við þekkjum fólk sem hefur hlustað á okkur síðan þau léku sér með Playmo og verið með okkur á heilanum síðan. Það er uppáhalds fólkið okkar en allir forvitnir eru líka velkomnir. Enn ungur en! Hlökkum til að sjá ykkur!"
Vagninn var stofnaður ári eftir komu Purrksins á Vestfirði 1981 og hefur beðið hans síðan. Það eru þónokkur ár.
Að fá svona hljómsveit á Vagninn er rosalegt. Þeir spiluðu tónleika í fyrra í Austurbæ og þar áður spiluðu þeir í Smekkleysu nokkur lög, þegar þeir gáfu út heildarsafn verka sinna "Orð fyrir dauða". Ég sem skrifa þetta var þarna og kleip mig oft, því þetta var óraunverulegt. Þvílíkir meistarar, þvílíkt band.
Forsala
https://tix.is/event/21620/purrkur-pillnikk-tonleikar-a-vagninum-flateyri
Performers
-
VagninnVagninn will be open for lunch between 12:00 - 14:00 all weekdays all winter (Mon - Fri)
First weekend of each month we will be open for dinner.
Friday nights will be open for drinks.
-
Purrkur PillnikkPurrkur Pillnikk er hljómsveit sem starfaði frá 8. mars 1981 til ágúst 1982 og svo aftur 2023!