Sumartónleikar í Akureyrarkirkju 40 ára
Akureyri Church, Eyrarlandsvegur, 600 Akureyri Directions
Sun 05.07.2026 17:00
Sumartónleikar í Akureyrarkirkju 40 ára
Margrét Árnadóttir sópran og Páll Barna Szabó píanóleikari opna 40 ára afmælishátið Sumartónleika í Akureyrarkirkju!
Sumartónleikar í Akureyrarkirkju eru nú haldnir í 40. sinn. Af því tilefni verður nýtt tónverk, sérstaklega pantað í afmælisgjöf til Sumartónleika og tónleikagesta, frumflutt á hverjum tónleikum í sumar. En Sumartónleikar í Akureyrarkirkju eru haldnir kl. 17 alla sunnudaga í júlí.
Margrét og Páll flytja sönglög eftir Fanny Mendelssohn, Clöru Schumann, Josephine Lang og Jórunni Viðar, auk þess að frumflytja nýtt sönglag eftir Kristínu Þóru Haraldsdóttur!
Menningarsjóður Akureyrarbæjar, sóknarnefnd Akureyrarkirkju og Héraðssjóður Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmis styrkja Sumartónleika í Akureyrarkirkju.
Performers
-
Listasumar á AkureyriArt summer festival
-
Margrét ÁrnadóttirHljómsveit