Garðurinn
Borgarleikhús. The Reykjavík City Theatre, Listabraut 3, 103 Reykjavík Directions
Thu 21.01.2027 20:00
Garðurinn
– uppspretta og landslag skynjunar
Íslenski dansflokkurinn kynnir Garðurinn / Paradísarvera, kvöldstund þar sem dansverk og danmynd mætast í sameiginlegri hugleiðingu um tengsl líkama, náttúru og skynjunar.
Í dansverkinu Garðinum, eftir þá Antonio de Rosa og Mattia Russo, verður stóra sviði Borgarleikhússins umbreytt í grasivaxinn garð. Danshöfundarnir endurhugsa Garðinn sem landslag skynjunar þar sem upplifanir renna saman við alheimsvitundina. Landslag líkama og mannlegar örsögur birtast okkur og hverfa jafnóðum í flæði sem endurspeglar brothætta mennsku, tengsl og nánd. Alheimssögur í smækkaðri mynd þar sem líf er í hverri frumu og heill heimur í hverjum dropa.
Antonio de Rosa og Mattia Russo eru forsprakkar listasamssteypunnar Kor´sia (Madrid). Þeir eru þekktir fyrir sjónrænt sterk verk þar sem dansinn fær að njóta sín og er þar Garðurinn engin undantekning.
Dansmyndin Beings of Paradise / Paradísarvera eftir Vikram Pradhan opnar aðra vídd sama samtals. Verkið er tilraunakennd hugleiðing um vistkynhneigð, vistnæmni og tengslanet skógarins. Innblásturinn er sóttur í Chipko-hreyfinguna á Indlandi á áttunda áratugnum, þegar konur veittu skógarhöggi friðsamlega mótspyrnu með því að faðma tré og verða sjálfar að lifandi varnargarði gegn eyðingu skóga. Vikram ímyndar sér hvernig skógurinn gæti hafa brugðist við slíkum gjörðum verndar og kærleika.
Í verkinu birtist skógurinn ekki sem óvirkt landslag heldur sem skynjandi vera, fær um að dafna í gegnum viðurkenningu, nánd og gagnkvæm tengsl. Landslagið lifnar við af tilfinningalegri gagnkvæmni sem ögrar ríkjandi hugmyndum um forsjá og stjórn. Verkið opnar mynd af samlífi þar sem maður og náttúra vaxa saman í gagnkvæmum tengslum, byggðum á umhyggju og nærveru.
Saman mynda þessi tvö verk eina heildstæða upplifun þar sem garðurinn og skógurinn verða að rýmum fyrir íhugun, næmni og tengsl. Garðurinn er boð um að stíga inn í lifandi landslag og upplifa nýjar leiðir til samveru.
Garðurinn
Höfundar: Antonio de Rosa og Mattia Russo
Dansarar: Andrean Sigurgeirsson, Diljá Sveinsdóttir, Elín Signý W. Ragnarsdóttir, Emilía Benedikta Gísladóttir, Erna Gunnarsdóttir, Eydís Rose Vilmundardóttir, Hiroki Ichinose, Ísabella Tara Antonsdóttir, Jaakko Fagerberg, Matthea Lára Pedersen, Sara Lind Guðnadóttir, Shota Inoue
Paradísarvera
Höfundur, myndataka og hljóð: Vikram Pradhan
Dansarar: Andrean Sigurgeirsson, Elín Signý W. Ragnarsdóttir, Emilía Benedikta Gísladóttir, Erna Gunnarsdóttir, Eydís Rose Vilmundardóttir, Sara Lind Guðnadóttir, Una Björg Bjarnadóttir
Performers
-
Íslenski dansflokkurinn
Kynnir Garðurinn / Paradísarvera, kvöldstund þar sem dansverk og danmynd mætast í sameiginlegri hugleiðingu um tengsl líkama, náttúru og skynjunar.
-
Andrean Sigurgeirsson
Dancer in Hverfa
-
Diljá Sveinsdóttir
Dancer in the performance.
-
Elín Signý W. Ragnarsdóttir
Dancer in the performance.
-
Emilía Benedikta Gísladóttir
Dansari í Garðinum og Paradísarvera.
-
Erna Gunnarsdóttir
Dancer in the performance.
-
Eydís Rose Vilmundardóttir
Icelandic dancer based in Reykjavík, with a BA in Contemporary Dance and experience in various dance projects.
-
Hiroki Ichinose
Dancer in Garðurinn.
-
Ísabella Tara Antonsdóttir
Dancer in Garðurinn.
-
Jaakko Fagerberg
Dance and performance artist, interested in different bodily researches.
-
Matthea Lára Pedersen
Dancer in Garðurinn.
-
Shota Inoue
Dancer in the performance.
-
Una Björg Bjarnadóttir
Dancer in
-
Antonio de Rosa
Choreographer of the dance work Garðurinn.
-
Mattia Russo
Choreographer of the dance work Garðurinn.
-
DJ markivDJ with some killer tunes