OASIS heiðurstónleikar
The Green Hat, Hafnarstræti 96, 600 Akureyri Directions
Sat 14.11.2026 21:00
OASIS heiðurstónleikar
35 ár eru nú liðin frá stofnun bresku hljómsveitarinnar OASIS í Manchester á Englandi. Sveitin sendi frá sér sjö breiðskífur á árunum 1994 til 2008 en lagði upp laupana árið 2009 eftir röð atvika milli forsprakka sveitarinnar, bræðranna Liam og Noel Gallagher. Hljómsveitin kom saman á síðasta ári og hélt í tónleikaferðalag víðsvegar um heiminn og komust færri að en vildu, svo ekki sé minna sagt. Margir Íslendingar sátu uppi með sárt ennið, enda sveitin aldrei heldur spilað á Íslandi yfir ferilinn.
Hópur íslenskra tónlistarmanna og aðdáenda sveitarinnar hefur því tekið sig saman og hyggst flytja öll bestu lög sveitarinnar með stælum á Græna Hattinum á Akureyri, Silfurtunglinu í Austurbæ í Reykjavík og í Bæjarbíói í Hafnarfirði. Verður allt lagt í sölurnar, hækkað vel í og sungið sig hása en þó, í mesta bróðerni þar sem nostalgía tíunda áratugarins flæðir í gegnum ærandi gítara og einstaka kvöldstund sem vottar þessari stórkostlegu sveit virðingarvott og tekur hattinn ofan.
Hljómsveitina skipa:
- Daníel Hjálmtýsson - söngur/slagverk
- Guðmundur Stefán Þorvaldsson - gítar
- Hálfdán Árnason - bassi
- Heiðar Örn Kristjánsson - söngur/gítar
- Helgi Birgir Sigurðsson - trommur
- Helgi Rúnar Gunnarsson - gítar
- Jón Ingimundarson - hljómborð
Það er 20 ára aldurstakmark á þennan viðburð.
Performers
-
Daníel Hjálmtýssonneo-goth/alt rock. Made in Iceland
-
Hálfdán Árnasonbassi
-
Heiðar Örn Kristjánsson
Lead vocalist from Botnleðja
-
Jón Ingimundarson
hljómborð
-
Oasis
Oasis Live '25