Fasteignamartröðin
Samkomuhúsið Akureyri, Hafnarstræti 55, 600 Akureyri Directions
Fri 30.10.2026 20:00
Kómískur frumskógur húsnæðismarkaðarins.
Arnrún er á þrítugsaldri og þarf að finna sér nýtt þak yfir höfuðið eftir óvænt sambandsslit.
Hún getur ekki flutt aftur í foreldrahús, líst illa á leigumarkaðinn og ákveður því að kaupa
sína fyrstu íbúð. Við tekur grátbroslegt og fáránlegt ferðalag í gegnum frumskóg
bankastarfsmanna, fasteignasala og lánardrottna.
Hér er á ferðinni beittur og meinfyndinn spegill á raunveruleika ungs fólks í dag, þar sem
persónusköpun í anda Sex and the City mætir absúrdveröld Kafka.
Verkið, sem er eftir litháenska leikskáldið Gabrielė Labanauskaitė, var valið besta erlenda
leikritið á stærstu leikritunarhátíð Þýskalands árið 2023.
Tegund: Grátbroslegur samtímaskáldskapur
Athugið: Aðeins sýnt í október og nóvember!