GULLREGN OG GERSEMAR - tónleikar 5. júlí kl. 14

GULLREGN OG GERSEMAR - tónleikar 5. júlí kl. 14

Stranda Church, Selvogsvegur, 816 Ölfus Directions

Sun 05.07.2026 14:00

Hin árlega tónlistarhátíð Englar og menn í Strandarkirkju hefst sunnudaginn 5. júlí með tónleikum kl. 14.

Fram koma Björg Þórhallsdóttir sópran, Kristín Sveinsdóttir mezzósópran, Elísabet Waage hörpuleikari, Hrefna Berg Pétursdóttir fiðluleikari og Hilmar Örn Agnarsson organisti.

Á efnisskránni eru ýmsar þekktar innlendar sem erlendar gersemar úr heimi tónlistarinnar. Þar má finna tónskáld eins og Sigfús Einarsson, Markús Kristjánsson, Sigfús Halldórsson, Pál Ísólfsson, Grieg, Strauss, Mendelssohn-Bartholdy, Mozart o.fl.

Aðgangsseyrir er kr. 5.000 / 4.500 og miðasala er við innganginn.

Að loknum tónleikum gefst tónleikagestum tækifæri á að kaupa úrvals kaffiveitingar hjá Guðrúnu í Pylsuvagninum.

Tónlistarhátíðin fer fram í júlímánuði og eru tónleikar alla sunnudaga kl. 14

Performers