70 ára afmæli tónlistarkennslu í Neskaupstað
Egilsbúð, Egilsbraut 1, 740 Neskaupstaður Directions
Sat Nov 14 2026 16:00
Afmælistónleikar verða haldnir í Egilsbúð 14. nóvember klukkan 16:00 í tilefni þess að 70 ár eru liðin frá upphafi tónlistarkennslu í Neskaupstað.
Afmælistónleikar verða haldnir í Egilsbúð 14. nóvember í tilefni þess að 70 ár eru liðin frá upphafi tónlistarkennslu í Neskaupstað. Núverandi og fyrrverandi nemendur og kennarar Tónskóla Neskaupstaðar flytja fjölbreytta dagskrá. Einnig verða til sýnis ljósmyndir úr skólastarfinu frá ýmsum tímum og boðið verður upp á léttar veitingar að tónleikum loknum. Öll eru velkomin að njóta tónlistar og rifja upp söguna með okkur. Tónleikarnir eru styrktir af Fjarðabyggð og SÚN.