Hljómsveitin Dalía og Björt Sigfinnsdóttir í Tónspil
Tónspil, Hafnarbraut 22, Hafnarbraut 20, 200 Kópavogur Directions
Thu 09.07.2026 20:30
Sumar kvartettinn” er samstarf einvala tónlistarfólks úr íslensku tónlistarlífi, sem leiðir saman
krafta sína, þvert yfir landið, í lítillri röð tónleika sumarið 2026.
Í Sumar Tríóinu eru:
Björt Sigfinnsdóttir (söngur)
Ásgeir Ásgeirsson (gítar)
Sigmar Þór Matthíason (kontrabassi) og
Birgir Baldursson (trommur)
Á tónleikunum verða spilaðar eigin útsetningar af uppáhalds Jazz og blús lögum bandsins í bland
við frumsamið efni, íslenska sálma/þjóðlög og einstaks “off genre” perlur úr ýmsum áttum.
Björt Sigfinnsdóttir er fædd, uppalin og búsett á Seyðisfirði. Hún hefur stundað tónlistarnám af
ýmsum toga frá blautu barnsbeini og kom fyrst fram aðeins 7 ára gömul þegar að jólalagið
“Hvenær koma jólin” eftir móður hennar Aðalheiðu Borgþórsdóttur, sigraði fyrstu
jólalagasamkeppni rásar tvö.
Björt hóf ung að læra söng og á hin ýmsu hljóðfæri við Tónlistarskóla Seyðisfjarðar en þar lærði
hún meðal annars á saxófón í um 10 ár hjá Einari Braga Bragasyni og klassískan söng í árabil hjá
Muff Worden. Þaðan lágu leiðir hennar í nám í jazz og rokk söng við söngdeild tónlistarskóla
FÍH á árunum 2005-2007 sem svo varð til þess að hún fór í CVI- Complete vocal technique
skólann í Kaupmannahöfn árið 2007. Auk þess var Björt á raftónlistar braut Tónlistarskóla
Kópavogs einn vetur.
Björt gaf út plötu með frumsömdu efni árið 2016 undir listamanna nafninu FURA. Á árunum
2016-2018 ferðaðist Björt víða um heim með tónlist sína og spilaði á festivölum um alla evrópu,
auk þess að eiga lög í alþjóðlegu kvikmyndunum “Agnes joy” (IS) leikstýrt af Silju Hauksdóttur og
“Mens vi lever” (DK) leikstýrt af Avaz bræðrunum.
Auk þess fer Björt með lítið hlutverk, þar sem að hún syngur íslenska þjóðlagi “vísur vatnsenda
rósu”, i Hollywood kvikmyndinni “Justice league” sem leikstýrt var af Sack Znyder.
Húsið opnar 20:00
Performers
-
Björt Sigfinnsdóttir
Listamaður sem skapar ljós- og hljóðinnsetningu.
-
Birgir Baldursson
UX Research and Design at Gangverk