Létt og leikandi með alvöru í bland
Hannesarholt, Grundarstigur 10, 101 Reykjavík Directions
Sat 29.08.2026 16:00
Tónleikar í Hannesarholti 29. ágúst 2026 kl. 16.00
Konur og rómantík
Létt og leikandi með alvöru í bland
Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari og Delana Thomsen píanóleikari munu flytja dagskrá af léttara taginu, með undurfögrum smáverkum að stórum hluta eftir konur. Önnur verk eru einnig tileinkuð konum á einn eða annan hátt. Á efnissskrá verða m.a, verk eftir Amy Beach, Lili Boulanger, Florence Price, Clöru Schumann, Fritz Kreisler, Mozart, Bach, Beethoven og Atla Heimi. Einnig íslensk sönglög eftir Hjálmar H. Ragnarsson, Þórarin Guðmundsson, Jórunni Viðar og Alexöndru Chernyshova.
Delana Thomsen er himinlifandi yfir að snúa aftur til Íslands til tónleikahalds með samstarfskonu sinni og vinkonu, Guðnýju Guðmundsdóttur. Hún hefur um árabil verið kennari við undirbúningsdeild Manhattan School of Music auk viðamikilla kennslustarfa við aðra skóla í New York. Hún hefur starfað sem meðleikari við Juilliard skólann, Aspen tónlistarhátíðina og Meadowmount sumarskólann. Hún starfar á sumrin við InterHarmony alþjóðlegu tónlistarhátíðina á Ítalíu.
Meðal virtra kennara Delönu hafa verið Ruth Slenczynska og
Arthur
Balsam, Dalmo Carra og Elizabeth Moschetti Tobias .
Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari var 1. konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Ísland í áratugi. Jafnframt því starfaði hún sem kennari við Tónlistarskólann í Reykjavík, sem síðar varð Menntaskóli í Tónlist og við Listaháskóla Íslands þar sem hún var útnefnd heiðursprófessor árið 2018.
Á ferli sínum hefur Guðný komið fram sem einleikari víða um lönd og einnig verið gestakennari við virta tónlistarháskóla erlendis.
Hennar helstu kennarar voru Björn Ólafsson, Carroll Glenn og Dorothy DeLay.
Þær Delana og Guðný hafa leikið saman frá níunda áratug síðustu aldar ýmist í Bandaríkjunum eða hérlendis Þær hafa m.a. komið fram á tónlistarhátíðum í Vermont, í Lincoln Center í New York, í Kammermúsíkklúbbnum og á Mozartmaraþon tónleikaröðinni í Hannesarholti fyrir nokkrum árum.