Mugison | Af fingrum fram
Salurinn, Hamraborg 6, 200 Kópavogur Directions
Thu 21.01.2027 20:30
Af fingrum fram hefur nú sitt 17. starfsár í Salnum í Kópavogi en í þessari sívinsælu spjalltónleikaröð tekur Jón Ólafsson á móti fjölbreyttum hópi listafólks þar sem einlæg samtöl, skemmtilegar sögur úr tónlistarlífinu og lifandi flutningur ráða ríkjum og skapa þannig einstaka kvöldstund.
Tónleikaröðin á rætur sínar að að rekja til samnefndra sjónvarpsþátta sem meðal annars hlutu Edduverðlaunin árið 2002. Fyrir 17 árum ákvað gestgjafinn að flytja hugmyndina úr sjónvarpssal og yfir á svið Salarins í Kópavogi við mikinn fögnuð landans sem flykkst hafa á tónleikaröðina allar götur síðan.
Jón Ólafsson er samur við sig þennan tónleikaveturinn og fær áfram til sín fjölbreyttan flokk listafólks í einlægt spjall og góða tóna.
Gestir Af fingrum fram 2026-2027 eru eftirfarandi:
- 17. september 2026: Halli og Gói
- 1. október 2026: Una Torfa
- 15. október 2026: Jón Jónsson
- 5. nóvember 2026: Jónas Sig
- 26. nóvember 2026: Ragga Gísla
//
- 21. janúar 2027: Mugison
- 11. febrúar 2027: Bríet
- 11. mars 2027: Daníel Ágúst
- 8. apríl 2027: Ólöf Arnalds
- 6. maí 2027: Sóli Hólm
Performers
-
MugisonI played my first Airwaves in 2003! feels like it was yesterday – I´ve done many different sets, laptopboogie, rockband crazyness, accustic nicey, this year I´m gonna Paul Simon the hell out of my songs with my new 10 peace band. WOW! it´s gonna be something else, I´d love if you could come to the show and show us support by dancing and shouting! Love and respect, Mugison.
-
Af fingrum framA concert series featuring various artists
-
Jón Ólafs
Music