Boney M
Harpa | Eldborg, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Directions
Sat 19.12.2026 20:00
Boney M. og Herbert Guðmundsson saman á jólatónleikum í Hörpu
Tvær goðsagnir munu sameinast á jólatónleikum í Hörpu - hin goðsagnakennda diskó hljómsveit Boney M. ásamt upprunalegu söngkonunni, Liz Mitchell, sem kemur fram ásamt stórhljómsveit sinni sem er afar sjaldgæft, og einn ástsælasta söngvari Íslands, Herbert Guðmundsson.
Boney M. mótaði alþjóðlegu tónlistarsenuna á áttunda og níunda áratugnum, með sínu einstaka blandi af diskó-, reggí- og popptónlist, og er hún á meðal farsælustu diskó hljómsveita sögunnar. Með yfir 150 milljónir seldar plötur, smelli sem hafa slegið í gegn um allan heim og hljóm sem hafði áhrif á heilu kynslóðirnar, lyfti hljómsveitin diskó tónlist á nýjar hæðir og varð samnefnari fyrir gleði og skemmtun.
Í broddi fylkingar er heimsfræg rödd Boney M., Liz Mitchell en hún stígur á svið í Hörpu með 12 manna hljómsveit og bakraddarsöngvurum. Með kröftugri söngrödd færir hún einstaka orku og ástríðu inn í klassísk lög eins og Rivers of Babylon, Daddy Cool, Rasputin, Ma Baker, Sunny, Hooray! Hooray! It's a Holi-Holiday og Mary’s Boy Child / Oh My Lord. Þessi líflega hljómsveit færir okkur hinn ekta, smitandi Boney M. hljóm með mikilli gleði sem er fullkomið fyrir hátíðarnar.
Tónleikarnir hefjast á innslagi frá einni lífseigustu rokkstjörnu Íslands, Herberti Guðmundssyni, sem snýr aftur í Hörpu ásamt öflugri, fimm manna hljómsveit sinni. Eins og allir vita er Herbert hæfileikaríkur tónlistarmaður sem hefur heillað áheyrendur í hálfa öld með áhrifamikilli rödd sinni, grípandi gítarhljómum og smitandi takti. Áhorfendur munu geta upplifað aftur þekkt lög eins og Með stjörnunum, Can't Walk Away, Í þér býr það besta, Hollywood, Time, Svaraðu og I Follow You.
Ísland, undirbúið ykkur fyrir veislu! Jólatónleikarnir með Boney M. og Liz Mitchell, ásamt Herberti Guðmundssyni, verða haldnir í Eldborg í Hörpu, laugardaginn 19. desember klukkan 20:00. Miðaverð er frá 6,990 til 22,990 króna og er miðasala hafin á harpa.is og tix.is
Performers
-
Boney MBoney M. is a dance-pop vocal collective originally conceived by German song-writer/record producer Frank Farian. The band’s line up changed frequently over the years; however, it’s stylistic scope managed to maintain some form of consistency considering it conformed to the vision of Farian.
-
Herbert Guðmundsson
A music group performing at the festival.