Félagslegir töfrar | Vika einmanaleikans
Kópavogur library, Hamraborg 6a, 200 Kópavogur Directions
Wed 07.10.2026 17:00
Yfirskrift viðburðarins þann 7. október er Félagslegir töfrar og hefst kl. 17:00 með kynningu frá Félagi kvenna í Kópavogi.
Viðar Halldórsson prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands mun koma til okkar með fyrirlesturinn Félagslegir töfrar.
Í kjölfarið á Halldóri fer Eyrún Ósk Jónsdóttir verkefnastjóri á Bókasafni Kópavogs stuttlega yfir samfélagið á bókasafninu, viðburði og þjónustu og í lokin verður boðið upp á fallegt tónlistaratriði með Andrés Ramón tónlistarmanni.
Andrés Ramón lauk meistaranámi í tónsmíðum með áherslu á tónlistarmannfræði frá Listaháskóla Íslands, þar sem hann kennir nú.
Frítt inn og öll velkomin.
Félag kvenna í Kópavogi og Bókasafn Kópavogs taka höndum saman í viku einmanaleikans og bjóða upp á fræðslu, skemmtun og spjall þann 7. október kl. 17.
Vika einmanaleikans er vitundarvakning Kvenfélagasambands Íslands gegn einsemd og einmanaleika og er verkefninu ætlað að opna á umræðu um einmanaleika í samfélaginu, upplýsa almenning um orsakir og afleiðingar, hvetja til aðgerða og efla samtakamátt í þjóðfélaginu gegn einmanaleika.
„Bókasafn Kópavogs gerir margt til að sporna við einmanaleika og er margt í boði hjá okkur fyrir öll. M.a. erum við með þrjá hannyrðaklúbba, þrjá bókmennta- og lesklúbba, Sögufélag Kópavogs stendur reglulega fyrir ýmsum viðburðum, rithöfundar koma til okkar á ýmsar uppákomur, Jane Austen klúbburinn er með aðsetur hjá okkur og tónleikar, ýmis fræðsla og uppákomur eru nánast daglega hjá okkur,“ segir Lísa Z. Valdimarsdóttir forstöðumaður Bókasafns Kópavogs.
Við hvetjum öll til að kíkja við og sækja sér fræðslu og skemmtun í notalegu andrúmslofti.
Performers
-
Vika einmanaleikansVika einmanaleikans er verkefni/vitundarvakning sem Kvenfélagasamband Íslands stendur að. Verkefnið er styrkt af Félags- og húsnæðismálaráðuneyti og Lýðheilsusjóði. -
Andrés RamónTónlistarmaður sem flytur þjóðlög frá Suður-Ameríku.
-
Viðar Halldórsson
Intellectual Craftsmanship – and the challenges of academia
-
Eyrún Ósk JónsdóttirRithöfundur með erindi um friðarheimspeki búddismans.
-
Lísa Z. Valdimarsdóttir
International KonMari consultant and owner of
-
Félag kvenna í KópavogiFélag kvenna í Kópavogi var stofnað 1. febrúar 2019, formaður er Una María Óskarsdóttir -
Kvenfélagasamband ÍslandsNonprofit organization