Á Móti Sól 30 ára

Á Móti Sól 30 ára

Hof Menningarhús | Hamraborg, Strandgata 12, 600 Akureyri Directions

Sat Apr 03 2027 20:00

Forsala hefst á póstlista Dægurflugunnar 17.nóv og almenn sala 19.nóvember kl 10 á mak.is og tix.is.

Skráning á póstlista:

👉 https://tinyurl.com/Daegurflugan

Á Móti Sól fagnar 30 ára ferli með stórtónleikum í Hofi.

Ein vinsælasta og langlífasta hljómsveit landsins, Á Móti Sól, á 30 ára starfsafmæli – og það verður fagnað með stórkostlegri skemmtun.

Frá fyrstu skrefum hefur Á Móti Sól verið órjúfanlegur hluti af íslenskri tónlistarsögu. Lög eins og "Flottur", "Spenntur", „Ég verð að komast aftur heim"„Hvar sem ég fer" og fjöldi annarra smella sem hafa fylgt landsmönnum í þrjá áratugi – á böllum, útihátíðum, tónleikum, brúðkaupum og í útvarpinu.

Nú er komið að stórtónleikum þar sem öllu verður tjaldað til og öll bestu lögin og nokkrar vel valdar sögur fá að hljóma.

Þetta er kvöld fyrir þá sem ólust upp með sveitinni og þá sem hafa nýlega uppgötvað hana.

Performers