MOMENT - Söfnun fyrir Minningarsjóð Bryndísar Klöru
MOMENT, Klapparstígur, Reykjavík Directions
Sat 22.08.2026 00:00
Á hverju ári bætir MOMENT við ógleymanlegum augnablikum í minningabankann fyrir þúsundir gesta sem sækja Menningarnótt. Í ár ætla DJ Margeir og MOMENT að bæta um betur og styrkja af öllu afli Minningarsjóð Bryndísar Klöru. Ef þú ætlar að taka flugið með okkur á Menningarnótt og njóta augnabliksins til fulls getur þú þakkað fyrir þig með því að styrkja þetta hjartnæma og mikilvæga málefni.Á moment.is getur þú tekið þátt og keypt styrktarmiða þar sem öll framlög (ekki bara ágóði) renna óskipt í Minningarsjóð Bryndísar Klöru. DJ Margeir og MOMENT munu jafna öll framlög, krónu á móti krónu, allt að 500.000 krónum.Eins og alltaf er aðgangur á MOMENT opinn öllum og ókeypis, í boði Icelandair.Verndari Minningarsjóðs Bryndísar Klöru er Halla Tómasdóttir, forseti Íslands.StyrktarmiðarEf þú kaupir styrktarmiða fer nafn þitt í pott og þú átt möguleika á vægast sagt glæsilegum vinningum frá veitingastöðum í nágrenni við MOMENT.VinningarMonkeys, fimm rétta kvöldverður fyrir tvo ásamt fordrykkKOL, sex rétta smakkferðalag fyrir tvoBastard Brew & Food, botnlaus brunch fyrir tvoLebowski Bar, gjafabréf að verðmæti 15.000 kr.
Kauptu styrktarmiða fyrir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á moment.is og leggðu góðu málefni lið. Þú ert alltaf að fara að vinna!Um viðburðinnEinu sinni ári gerast undursamlegir töfrar á Klapparstíg sem erfitt er að lýsa í orðum. Þúsundir sálna lifna til lífsins, upplýsast og svífa saman inn í undraheim danstónlistar undir fagmannlegri handleiðslu DJ Margeirs, sem ár hvert laðar að sér sífellt óvæntari og skemmtilegri gesti. Í rúm tíu ár hafa ungir sem aldnir farið á hugljómandi flug á Moment á Menningarnótt, þar sem allir hafa leyfi til að sleppa af sér beislinu og gefa sig á vald guðdómlegra kærleikskrafta. Frjáls tjáning. Trylltir taktar. Viðburðurinn litríki er ókeypis í boði Icelandair og allir eru velkomnir. Borgarstjóri mun setja Menningarnótt á MOMENT sviðinu kl. 12:30 laugardaginn 22. ágúst.„MOMENT er í raun einskonar dansmaraþon á Menningarnótt þar sem góð stemmning, ljós og kærleikur eru í fyrirrúmi. Okkur langar að nota þann kraft sem verður til á Klapparstígnum til góðs og hvetjum alla sem hafa notið augnabliksins með okkur í gegnum árin til að styrkja Minningarsjóð Bryndísar Klöru. Ég skora jafnframt á aðra öfluga aðila sem hafa sett svip sinn á Menningarnótt í gegnum árin að finna leið til að styðja við þetta góða málefni. Ef við öll leggjumst á eitt getum við látið hátíðina snúast um meira en skemmtunina eina og skapað raunveruleg, jákvæð áhrif.“— DJ Margeir MOMENT eftirpartý í Iðnó Þegar Menningarnótt lýkur tekur við MOMENT eftirpartý í Iðnó, í samvinnu við Celebration of US, þar sem 300 dansþyrstir einstaklingar munu halda gleðinni á lofti inn í nóttina. Ath! Aðeins 300 miðar í boði. Þessir listamenn koma fram í Iðnó:DJ Margeir & gestirExos (live)MaguguÞorgerðurOculusBellamix69Lísbet RósTryggðu þér miða hér:
-> https://tickets.moment.is/event/moment-a-menningarnott-afterparty-cq2ua5 <-
Performers
-
DJ Margeir
A live DJ performance featuring Matthildur from Iceland.
-
ExosExos is one of the most experienced techno artists from
Iceland since the mid-nineties.
-
MaguguMagugu is a worldly wide versatile pidgin rap experimentalist, MC, and producer from Ajegungle, a city of Lagos and now based in the UK.
-
ThorgerdurRA: Resident Advisor
-
Oculus
Fridfinnur Sigurdsson (Oculus) name has risen quickly the last year
and is now a leading voice in the Icelandic dance music scene.
He first appeared on the label Communique in September 2008
and has now released several EPs on respected labels acros..
-
BELLAMIX69
DJ
-
Lísbet Rós
Opening act setting the tone for the night.