Söngleikjastælar | Fjölskyldutónleikar
Salurinn, Hamraborg 6, 200 Kópavogur Directions
Mon 02.11.2026 14:00
Söngleikjastælar snúa aftur vegna fjölda áskoranna. Bjarni Snæbjörns og Sigga Eyrún mæta í Salinn með tónleikaröðina Söngleikjastæla. Tónleikaröðin sló í gegn í fyrra og er óður til söngleikjanna þar sem ný og gömul söngleikjatónlist fær að njóta sín í meðförum reyndra söng-leikara ásamt hljómsveit. Sprúðlandi fjölskyldutónleikar um miðjan dag þar sem börn á öllum aldri fá að syngja með. Að þessu sinni verða þrennir tónleikar í tónleikaröðinni Söngleikjastælar sem teygja sig yfir allan veturinn þar sem hverjir tónleikar eru með ólíka nálgun á formið. Ekki missa af enn meiri Söngleikjastælum: 2. nóvember: Nýstirnið Salka Gústafsdóttir og þjóðargersemin Jóhann Sigurðarson koma sem gestasöngvarar og flytja sín uppáhalds söngleikjalög. 25. apríl: Sprengju-tónleikar með Söngleikjakórnum Viðlag.
Performers
-
Bjarni Snæbjörns
Reyndur söngleikari
-
Sigga Eyrún
A solo artist performing Christmas concerts.
-
Salka Gústafsdóttir
Guest performer
-
Jóhann SigurðarsonSöngvari sem fer í gegnum feril sinn með söngvum og sögum.