Mæðramáttur - Seigla 2026

Mæðramáttur - Seigla 2026

Norðurljós in Harpa, Austurbakki 2, 101 Reykjavik Directions

Sun 09.08.2026 17:00

Tónleikarnir Mæðramáttur eru helgaðir mæðrum, móðurhlutverkinu og þeim fjölmörgu þráðum sem það spannar.

Á efnisskránni eru einsöngsljóð og dúettar sem varpa ljósi á hinn hlýja og verndandi móðurfaðm, vaggandi róminn og þær margbreytilegu tilfinningar sem bærast um í móðurhjartanu. Þar mætast umhyggja, mildi og stolt, en einnig ákefð, ótti, þreyta og jafnvel reiði. Einnig fær sterk rödd konunnar sjálfrar hljómgrunn, langanir hennar og lífskraftur handan þeirra hlutverka sem hún gegnir fyrir aðra.

Þessi þemu eru samofin söngvum um vorið, sem frá fornu fari hefur verið tákn frjósemi, endurnýjunar og nýs upphafs. Tónleikarnir eru óður til móðurástarinnar og lífs sem vex og dafnar, líkt og vorið í náttúrunni.

Flytjendur
Vera Hjördís Matsdóttir, sópran
Hildigunnur Einarsdóttir, mezzó-sópran
Matthildur Anna Gunnarsdóttir, píanóleikari

Áætluð lengd: 60 mínútur, án hlés.


Hátíðardagskrá Seiglu, upplýsingar um flytjendur og aðra viðburði má finna á www.seiglafestival.com og í hátíðartímaritinu Seiglazine.

Harpa er sérstakur styrktaraðili Seiglu 2026. Tónlistarhátíðin Seigla er einnig styrkt af Tónlistarsjóði, Styrktarsjóði SUT og Ruthar Hermanns, Ýli, Menningarsjóði FÍH, Listaháskóla Íslands og Hollvinum Seiglu.

Performers