NÚNA
Kaupvangsstræti 23, Kaupvangsstræti 23, 600 Akureyri, Iceland, 600 Akureyri Directions
Sat 15.08.2026 14:00
NÚNA
NÚNA er einkasýning ReginaGunn í Deiglunni á Akureyri.
Sýningin hverfist um augnablikið – að staldra við, anda, vera, njóta, leika og taka eftir því sem er hér og nú.
Þegar Regína skapar finnur hún frið og ró, en um leið kraft og orku. Náttúran hefur lengi verið henni uppspretta innblásturs og þar finnur hún sömu andstæður; kyrrð og kraft, ró og hreyfingu.
Verkin á sýningunni eru ólík NÚNA – augnablik, upplifanir og tilfinningar sem hafa orðið að ólíkum verkum. Við gerð sýningarinnar leyfði Regína ferlinu að leiða sig áfram, prófa nýjar leiðir og vera opin fyrir því sem birtist.
Við sjáum ekki öll það sama. Við finnum og upplifum hvert á okkar hátt.
Með NÚNA býður ReginaGunn gestum að staldra við, horfa, finna og upplifa sitt eigið NÚNA.