ACT vinnustofa fyrir fagaðila

ACT vinnustofa fyrir fagaðila

Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions

Fri Nov 13 2026 10:00

Viltu læra (meira) um „Sáttar- og ábyrgðarmeðferð“ (ACT)?
Viltu læra að nálgast skjólstæðinga þína út frá samkenndar- og einstaklingsmiðaðri nálgun?

Viltu læra (meira) um „Sáttar- og ábyrgðarmeðferð“ (e. Acceptance and Commitment Therapy, ACT)?

Viltu læra að nálgast skjólstæðinga þína út frá samkenndar- og einstaklingsmiðaðri nálgun?

Viltu æfa tæknina í rými sem er ódæmandi og svarar spurningum?

Viltu fara út fyrir þægindarammann og öðlast meiri sátt í lífi og starfi?

Viltu læra kenninguna á bak við ACT og öðlast dýpri þekkingu?

ACT er örast vaxandi gagnreynda meðferðarformið í heiminum í dag.ACT hefur sýnt árangur þvert á raskanir (e. cross diagnostical).ACT hentar öllum.ACT hefur verið þróað sem bæði snögg íhlutun fyrir t.d. heilsugæslu og bráðadeildir og lengra meðferðarform.

ACT vinnustofa fyrir fagaðila er hugsuð fyrir fagfólk sem vinnur með fólki í daglegu starfi (hér er átt við heilbrigðisstarfsfólk svo sem sálfræðinga, félagsráðgjafa, sjúkraþjálfara, lækna og hjúkrunarfræðinga). Vinnustofa 1 er tveir dagar. Farið verður í kenninguna að baki meðferðarforminu (e. Relational frame theory) til að kanna hugmyndafræðina. Farið verður í undirstöður ACT (sexhyrninginn), hvað rannsóknir hafa sagt og árangur þess við hinar ýmsu raskanir skoðaðar. Farið verður í hvert horn á meðferðinni og það útskýrt nánar. Samhliða þessu verður æfð tækni eins og að „varpa akkeri“ og aðrar æfingar til að meðferðaraðilar geti byrjað að nota ACT með sínum skjólstæðingum.

Ef vel gengur með vinnustofu 1 er hugsunin að dýpka enn á þekkinguna með frekari vinnustofum.

Efni og ávinningur

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Hugmyndafræðina að baki ACT.
  • Grunnverkfærin sem notuð eru í ACT.
  • Vísindalegan bakgrunn og stuðning ACT.

Ávinningur þinn:

  • Þú munt læra ítarlega um ACT.
  • Þú munt öðlast grunnfærni í að nota ACT í daglegu starfi.
  • Þú munt læra aðferðafræði og hin ýmsu verkfæri sem notuð eru í ACT.

Aðrar upplýsingar

Þátttakendur þurfa ekki að hafa neitt með sér annað en hugsanlega skriffæri eða það sem þeim finnst gott að nota til að punkta hjá sér. Ítarlegur listi yfir lesefni verður birtur tímanlega fyrir upphaf námskeiðsins en ekki er nauðsynlegt að lesa hann frekar en fólk hefur tíma til.

Nánar um kennara

Hjördís Inga er sérfræðingur í klínískri sálfræði fullorðinna og rekur sína eigin sálfræðistofu í miðbæ Reykjavíkur. Hjördís var um hríð verkefnastjóri áfallahjálpar á landsvísu hjá Rauða Krossinum á Íslandi. Hún hefur sérmenntað sig í hugrænni atferlismeðferð og notkun hugrænnar úrvinnslumeðferðar (HÚM) við áföllum. Undanfarin 6 ár hefur Hjördís lagt kapp á að læra Sáttar og ábyrgðarmeðferð (ACT). Hefur hún setið ótal námskeið og vinnustofur og árið 2024 lauk hún tveggja ára sérnámi í ACT í Danmörku en það er eina sérnámið í Evrópu sem hlotið hefur viðurkenningu upphafsmanns ACT, Stephen C Hayes.

Hjördís hefur einnig þýtt ACT streitubækling alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar (WHO), Að gera það sem skiptir máli á streitumiklum tímum (Doing what matters in times of stress).