Að ferðast ein um heiminn
Tue Feb 09 2027 18:00
Á þessu námskeiði er fjallað um hvað ber að hafa í huga þegar við erum ein á ferð úti í hinum stóra heimi og hvers konar ævintýri bíða þeirra sem þora.
Að ferðast ein eða einn er stórkostlegur ferðamáti. Það felur í sér mikið frelsi en á sama tíma nokkrar áskoranir. Á þessu námskeiði verður fjallað um hvað ber að hafa sérstaklega í huga þegar við erum ein á ferð úti í hinum stóra heimi og hvers konar ævintýri bíða þeirra sem þora.
Að ferðast ein eða einn er allt öðruvísi en að vera með öðrum á ferð. Við höfum frelsi til að gera það sem hugurinn vill hverju sinni án þess að hafa áhyggjur af öðrum. Við þurfum ekki að bíða eftir því að finna ferðafélaga, við þurfum ekki að laga okkur að áhuga og óskum annarra varðandi áfangastað, gististað, mataröflun og tímasetningar. Við förum þegar okkur langar til og við gerum það sem við viljum gera og það er frábært! Ævintýrin bíða okkar handan við hornið og við skoðum hvað þarf að hafa sérstaklega í huga þegar við erum ein á ferð.
Fyrir alla áhugasama um að ferðast einir og fyrir þá sem hafa látið hjá liggja að fara í ferðalög vegna skorts á ferðafélaga. Námskeiðið veitir hvatningu og innblástur til að leggja af stað einir á vit ævintýranna.
Efni og ávinningur
Á námskeiðinu er fjallað um:
- Öryggi á ferðalögum.
- Margvíslega fararmáta; skip, lestir, flug, hjól o.fl.
- Ferðalög erlendis, ferðalög innanlands.
- Gistimöguleika.
- Ævintýraþrá.
- Einveru, njóta án annarra.
Ávinningur þinn:
- Aukinn skilningur á að þú getur ferðast án ferðafélaga.
- Öðlast hugrekki til að fara í ferðalag.
- Færð praktísk öryggisráð.
- Betri upplifun þess að vera ein/einn/eitt.
- Færð innblástur að næsta ferðalagi.
- Lærir að skipuleggja ferðalag upp á eigin spýtur.