Aðalsteinn Leifsson á Krossgötum: Söguleg sátt lútersku og rómversku kirkjunnar?
Neskirkja, Hagatorg, 107 Reykjavík Directions
Mon 07.09.2026 13:00
Aðalsteinn Leifsson, fyrrum ríkissáttasemjari: Söguleg sátt lútersku kirkjunnar og þeirrar rómversk kaþólsku um réttlætingu mannsins?
Ágreiningur um réttlætingu mannsins var í hjarta átaka milli Marteins Lúters og rómversk kaþólsku kirkjunnar. Hún átti ríkan þátt í að sundra vesturkirkjunni á 16. öld þegar rómversk kaþólska kirkjan fordæmdi Lúther og fylgisfólk hans fyrir villutrú og mótmælendur svöruðu í sömu mynt. Fyrir Lúter var réttlætingarkenningin ekki ein af mörgum kenningum kristindómsins, heldur sú sem kirkjan stendur og fellur með, enda er í henni sjálfur kjarni kristindómsins falinn.
Árið 1999 undirrituðu Lúterska heimssambandið og rómversk kaþólska kirkjan sameiginlega yfirlýsingu: „Joint Declaration on the Doctrine of Justification“ (JDDJ). Í yfirlýsingunni segir að hún feli í sér „samhljóm um grunnsannindi réttlætingarkenningarinnar...”.
En leysir þessi yfirlýsing þennan grundvallarágreining síðustu 450 ára milli lútersku kirkjunnar og þeirrar rómversk kaþólsku? Eða er hún aðeins yfirklór?
Aðalsteinn Leifsson nýtir þekkingu sína og reynslu á sviði samningamála þar sem hann fjallar um yfirlýsinguna, spyr hvernig hún vinnur úr ágreiningnum og leitast við að greina hvort og þá hvernig ágreiningurinn var leystur. Loks spyr hann hvaða þýðingu sátt þessi hafi fyrir mögulegt samstarf lútersku kirkjunnar og rómversk kaþólsku kirkjunnar um heim allan.