Aðdragandinn | Ása Marin - Öruggt skjól á Eskifirði

Aðdragandinn | Ása Marin - Öruggt skjól á Eskifirði

Listasmiðjan í Önnustofu, Strandgata 28, 220 Hafnarfjörður Directions

Fri Nov 20 2026 17:00

Aðdragandinn í nóvember færir okkur skref fyrir skref nær jólum eina síðu í senn. Við fáum höfund í heimsókn hvern föstudag í nóvember þar sem við kynnum spennandi og nýjar bækur í aðdraganda jóla, og Kynstranna allra, jólabókakvölds Bókasafns Hafnarfjarðar. Á Aðdragandanum vörpum við ljósi á allskonar ritverk og njótum flóru íslenskra bókmennta - og svo er auðvitað frábært að hlusta á smá ritsnilld og skreppa svo í Jólaþorpið til að komast í hátíðarskap!

Nú kemur rómantíkerinn og yndishöfundurinn Ása Marin í heimsókn með bókina 'Öruggt skjól á Eskifirði', sem er bráðskemmtileg rómantísk aðventusaga. Dag einn er Kristínu nóg boðið: Vinnan og þriðja vaktin eru að ganga frá henni og hún leggur óvænt af stað austur á firði til að heimsækja góðan vin og hugsa sinn gang. Eiginmaðurinn vill ólmur fá hana aftur heim en fjallmyndarlegur Eskfirðingur skýtur upp kollinum og flækir málin.