Aðventa - Leiklestur á smásögu Gunnars Gunnarssonar
Listasmiðjan í Önnustofu, Strandgata 28, 220 Hafnarfjörður Directions
Sat Nov 28 2026 13:00
„Þegar hátíð fer í hönd, búa menn sig undir hana, hver á sína vísu.“ - Á þessum orðum hefst smásaga Gunnars Gunnarssonar, Aðventa.
Þessi hlýja saga færir mörgum jólin, en hún er byggð á sannri sögu úr frásögnum Benedikts Sigurjónssonar, einnig þekktum sem Fjalla-Bensa, sem heldur á aðventunni upp á öræfin ásamt smalahundinum Leó og forustusauðnum Eitli í leit að eftirlegukindum til að koma þeim í hús fyrir hátíðirnar.
Samskipti manns, náttúru og dýra, kærleikur og fórnfýsi eru þungamiðja sögunnar og verður hún flutt af leikurunum Arnmundi Ernst og Sveini Óskari, sem eru nú orðnir gestum bókasafnsins kunnir sem boðberar jóla, í heild sinni yfir heitum drykkjum og kertaljósum. Flutningur er rétt rúmir tveir tímar.
Það er að sjálfsögðu ókeypis á að hlýða, og kaffi og kruðerí í boði