Aðventudagskrá á Byggðasafni Árnesinga

Aðventudagskrá á Byggðasafni Árnesinga

Byggðasafn Árnesinga, , Suðurland

Sun Dec 13 2026 13:00

Jólaandinn mun svífa yfir vötnunum á Byggðasafni Árnesinga á aðventu.

Skáldastund, Sunnudaginn 29. nóvember kl. 15.

Rithöfundar lesa úr nýútkomnum verkum sínum. Þeir höfundar sem heimsækja Húsið í ár eru:

Steinunn Sigurðardóttir, Katrín Jakobsdóttir, Hildur Knútsdóttir, Sverrir Jakobsson.

Dagkráin hefst kl. 14.

Systurnar Agnes og Jóhanna Ragnarsdætur flytja hugljúf jólalög, við undirleik Eyjólfs Eyjólfssonar.

Jólasýning Byggðasafns Árnesinga er opin frá kl. 13–17 sama dag og næstu tvo sunnudaga.

Jólatorgið á Eyrarbakka verður jafnframt opið 29. nóvember og 6. desember.

Jólastund Sunnudaginn 6. desember.

Jólaföndur, Björgvin Tómasson með Lírukassann, jólasveinaratleikur verður í boði alla dagana. Unglingakór Selfosskirkju undir stjórn Editar Molnár og Jólaglugginn opnar.

Kyrrð og samvera 13. desember.

Njóttu rólegrar aðventustundar með jólaföndri, piparkökum og notalegri samveru í Húsinu á Eyrarbakka.

Ókeypis aðgangur og allir velkomnir.