Aðventuhátíð Langholtskirkju
Langholtskirkja, Sólheimar 13, 104 Reykjavík Directions
Sun Nov 29 2026 17:00
Fyrsta sunnudag í aðventu verður haldin glæsileg aðventuhátíð í Langholtskirkju kl. 17.
Allir kórar kirkjunnar syngja aðventu- og jólatónlist hver í sínu lagi og saman. Auk þess leikur Lúðrasveitin Svanur skemmtileg jólalög, lesin verður jólasaga, elstu börnin í Krúttakórnum flytja Lúsíuleik og kirkjugestir syngja inn aðventuna.
Fram koma Kór Langholtkirkju, Graduale Nobili, Gradualekórinn, Graduale Futuri, Graduale Liberi, Krúttakórinn og Lúðrasveitin Svanur. Prestur er Sunna Dóra Möller.
Aðgangur er ókeypis.