Aðventustund fósturforeldra á Akureyri
Bjarmastígur 8, 600 Akureyrarbær, Ísland, Bjarmastígur 8, 600 Akureyri Directions
Tue Nov 24 2026 16:00
Það er í nægu að snúast í aðventunni og ef þess er ekki gætt sérstaklega er hætta á að það gleymist að staldra aðeins við og njóta hennar.
Því býður félagið fósturforeldrum til notalegrar stundar þar sem við kveikjum á kertum, skenkjum okkur heitt jólaglögg og skálum saman fyrir okkur sjálfum og öllum þeim sem stuðla að farsæld fósturfjölskyldna.
Hvetjum allt félagsfólk okkar til að mæta og eiga dásamlega stund í frábærum félagsskap.
Í boði verða léttar veitingar og bæði áfengir og óáfengir drykkir.