Aðventusýning í Hlíðarbæ🎄

Aðventusýning í Hlíðarbæ🎄

Hlíðarbær, Hlíðarbær, 604 Akureyri Directions

Sat Nov 28 2026 11:00

Við bjóðum til dásamlegrar Aðventusýningar Norðlenskrar hönnunar og handverks í Hlíðarbæ í lok nóvember, fyrstu helgi í aðventu.

Vandaðar vörur úr héraði, handa þér eða í jólapakkann, milliliðalaust úr höndum hönnuða, handverksfólks og sælkerameistara.

Kökubasar góðgerðarfélaga, kertasala og fleira.

Ilmandi kaffi í boði Nýju kaffibrennslunnar, piparkökur og tilvalinn vettvangur til gera sér glaðan dag í upphafi aðventu og góð kaup í leiðinni.

HVAR:

Í Hlíðarbæ, 604 Hörgársveit.

Hlíðarbær er á hægri hönd við þjóðveginn, nokkrum km norðan Akureyrar.

HVENÆR:

Laugardaginn 28. nóvember kl. 11-17.

Sunnudaginn 29. nóvember kl. 11-17.

SÝNINGARAÐILAR:

- Blúndur og blóm

- BRYN – Design

- Draumablá

- Garðurinn minn

- HALLDORA

- Helena saumar

- Hilma - hönnun og handverk

- KAOS - Íslensk hönnun og handverk

- KRÓ Design

- LINDA ÓLA art

- Malgorzata Ksepko Gosia Töfrahandverk

- Mynthringar og allskonar

- Ósk barnaföt

- Sif hannar

- Stefán Traustason

- Tré og föndur

- Tréskurður

- Ögn Icelandic bækurnar

- Öxnhóls Handverk

SÆLKERAMEISTARAR:

- Huldubúð

- R-rabarbari

- Reykkofinn við höfnina

- Smakk súkkulaði

- Öxnhóls kjöt

GLÆSILEGUR KÖKUBASAR:

- Laugardagur: Kvenfélag Hörgdæla

- Sunnudagur: Vonarbrú almannaheillafélag

Vonarbrú verður einnig með kertasölu og handverk til styrktar barnafjölskyldum í neyð á Gasa. Látum gott af okkur leiða.

Hittumst og njótum góðra stunda með skapandi fólki og vönduðum vörum úr héraði í gamla, góða Hlíðarbæ.

Verið hjartanlega velkomin.

F. h. Norðlenskrar hönnunar og handverks og f.h. sýningaraðilanna allra,

Krisín S. Bjarnadóttir hjá Blúndum og blómum og Vonarbrú

Kjartan Reynir Ólafsson hjá KRÓ Design