Aðventutónleikar - Diddú og drengirnir
Hlégarður, 2 Háholt, 270 Mosfellsbær Directions
Wed Dec 09 2026 20:00
Aðventutónleikar Diddúar og drengjanna verða haldnir í Hlégarði þann 9. desember - tónleikarnir verða haldnir til minningar um Þorkel Jóelsson sem var stór hluti af hópnum.
Diddú og drengina skipa Sigrún Hjálmtýsdóttir sópran, Sigurður I Snorrason klarinett, Kjartan Óskarsson klarinett, Brjánn Ingason fagott, Snorri Heimisson fagott, Emil Friðfinnsson horn og Joe Ognibene horn.
Einnig koma fram ungir gestasöngvarar, þau Lilja Guðmundsdóttir, Jóna G. Kolbrúnardóttir, Kristín Sveinsdóttir, Eggert Reginn Kjartansson og Unnsteinn Árnason.
Efnisskráin verður fjölbreytt, falleg og skemmtileg og verða þetta jafnframt síðustu tónleikar hópsins.
Diddú og drengirnir hafa unnið saman síðan árið 1997, og hafa haldið tónleika innanlands og einnig í Frakklandi, Englandi, Kanada og Ítalíu. Jafnframt hefur hópurinn gefið út tvær plötur, ‘Ave Maria’ árið 2004 og ‘Sönglög eftir Vestur-Íslendinga’ árið 2011.