Allir með leikarnir

Allir með leikarnir

Laugardalshöll Sport Center, Engjavegur 8, 104 Reykjavík Directions

Sat Oct 31 2026 10:00

Allir með Leikarnir 🎉

Laugardaginn 31. október fara Allir með leikarnir fram og Laugardalshöllin fyllist af gleði og skemmtun.

Allir með leikarnir eru íþróttahátíð fyrir börn á grunnskólaaldri með fatlanir eða stuðningsþarfir. Á leikunum fá þátttakendur tækifæri til að prófa fjölbreyttar íþróttagreinar í skemmtilegu og hvetjandi umhverfi. Markmið leikana er að kynna fyrir börnum ólíkar íþróttir og gefa þeim tækifæri til að uppgvötva íþrótt sem vekur áhuga þeirra.

Áhersla er lögð á leik, gleði og þátttöku á eigin forsendum. Engin krafa er gerð um fyrri reynslu af íþróttum og eru allir velkomnir.

Allir með leikarnir verða sannkallað íþróttapartý þar sem ýmislegt skemmtilegt verður í boði!

Tækifæri til að prófa alls konar íþróttagreinar

Hrekkjavökuþema – öll hvött til að mæta í búningi! 🎃

Sóli og Sóla mæta á svæðið ☀️

DJ heldur uppi stuðinu 🎶

Pizzaveisla 🍕

Landsliðsfólk mætir og heilsar upp á gesti 🇮🇸

📅 Laugardagurinn 31. október 2026

⏰ 10:00–14:00

🏟️Laugardalshöll

👥 6–16 ára�🎟️ 1.500 kr.

Skráning fer fram á Abler:

https://www.abler.io/shop/umfi?program=Q2x1YlNlcnZpY2U6Njc1OTk=