Alþjóðlegur dagur barna í sorg 2026

Alþjóðlegur dagur barna í sorg 2026

Live Stream - GMT, , Reykjavík Directions

Thu Nov 19 2026 12:00

🦋 Alþjóðlegur dagur barna í sorg - 19. nóvember 2026

Á alþjóðlegum degi barna í sorg viljum við vekja athygli á mikilvægi þess að styðja börn og ungmenni sem hafa misst ástvin.

Sorg barna birtist á ólíkan hátt og það skiptir máli að þau finni fyrir skilningi, hlýju og stuðningi í sínu nærumhverfi.

Í tilefni dagsins verður fjölbreytt og innihaldsrík dagskrá þar sem við sameinumst um að minnast, hlusta og skapa rými fyrir sorgina. 💙

🦋 Dagskrá dagsins

Kl. 12:00 - Hádegiserindi

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra flytur erindi og Kirstín Erna Blöndal tónlistarkona flytur tónlist og fjallar um gildi tónlistar í sálgæslu.

Örn Arnarsson leikur undir hjá Kirstínu Ernu.

Dagskráin verður í beinu streymi svo allir geti fylgst með, hvar sem þeir eru.

🎨 Kl. 16:30 - Listasmiðja

Listasmiðjan opnar í safnaðarheimili Vídalínskirkju þar sem börn, ungmenni og fjölskyldur geta komið saman og föndrað fiðrildi.

Fiðrildin verða síðan notuð með táknrænum hætti í minningarstund kvöldsins.

🕯️ Kl. 17:30 - Minningarstund í Vídalínskirkju

Hlý og falleg minningarstund fyrir alla unga syrgjendur og fjölskyldur þeirra.

Tvær ungar stúlkur deila reynslu sinni af systkinamissi og Páll Óskar Hjálmtýsson kemur fram við undirleik Ásgeirs Ásgeirssonar.

Við komum saman til að minnast þeirra sem við söknum og sýna börnum í sorg að þau standa ekki ein.

📍 Staðsetning: Vídalínskirkja í Garðabæ

📅 Dagsetning: Fimmtudagur 19. nóvember 2026

💙 Hjálpaðu okkur að styðja börn í sorg.

Við hvetjum alla til að taka þátt, fylgjast með streyminu og deila viðburðinum svo skilaboðin nái til sem flestra.

Örninn og Sorgarmiðstöðin standa að vitundarvakningu í tilefni dagsins.