Alþjóðlegur forvarnardagur sjálfsvíga - Kyrrðarstund í Bústaðakirkju
Bústaðakirkja, Tunguvegur 25, 108 Reykjavík Directions
Thu Sep 10 2026 20:00
Kyrrðarstund verður haldin í Bústaðarkirkju þann 10. september kl. 20:00, á alþjóðadegi sjálfsvígsforvarna, þar sem skapað verður hlýlegt rými til samveru, minningar og íhugunar.
Dagskrá:
💛 Séra Sigríður Kristín Helgadóttir býður gesti velkomna.
💛 Eva Skarpaas flytur opnunarávarp og kynnir dagskrá.
💛 Vigfús Bjarni Albertsson og Eva Skarpaas flytja hugvekjur.
💛 Guðmundur Pétursson og Ragnheiður Gröndal flytja tónlist.
💛 Kveikt verður á kertum til minningar um ástvini.
💛 Kór tónlistarskóla FÍH syngur undir stjórn Unu Stefánsdóttur.
💛 Slökkviliðið höfuðborgarsvæðisins stendur heiðursvörð.
Að kyrrðarstundinni lokinni verður boðið upp á kaffi og veitingar og gestum gefst kostur á að eiga saman rólega samverustund.
Öll hjartanlega velkomin💛