Alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa
Félagsheimilið í Hnífsdal, Strandgata 13, 410 Hnífsdalur Directions
Sun Nov 15 2026 15:00
Alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa
Sunnudaginn 15. nóvember verður minningarathöfn í Félagsheimilinu í Hnífsdal, þar sem við komum saman til að minnast fórnarlamba umferðarslysa. Að þessu sinni verður sérstök áhersla lögð á unga vegfarendur, öryggi þeirra og ábyrgð okkar allra í umferðinni.
Dagskrá
Kl. 14:30
Viðbragðsaðilar á svæðinu, lögregla, slökkvilið og björgunarsveitir, aka fylktu liði um Ísafjörð á helstu viðbragðstækjum svæðisins. Aksturinn endar við Félagsheimilið í Hnífsdal.
Kl. 15:00
- Teitur Magnússon flytur erindið „30 mínútur í köldum sjó – þegar allt þarf að ganga upp“.
- Séra Fjölnir Ásbjörnsson verður með hugvekju.
Að lokinni dagskrá verður boðið upp á vöfflur og kaffi.
Við hvetjum öll til að mæta og taka þátt í þessari samverustund.
Sjáumst í Félagsheimilinu í Hnífsdal.