Árangursrík starfsmannasamtöl

Árangursrík starfsmannasamtöl

Thu Jan 28 2027 08:30

Tryggðu betri samskipti og upplýsingaflæði með árangursríkum starfsmannasamtölum.

Vilt þú nýta betur það verkfæri sem starfsmannasamtöl eru við stjórnun mannauðsmála? Á tímum stöðugra breytinga og áskorana í umhverfinu og aukinnar fjarvinnu er mikil þörf á því að eiga betri og tíðari starfsmannasamtöl við starfsmenn. Starfsmannasamtöl eru oft vannýtt verkfæri og markmið tíðari starfsmannasamtala er að bæta samskipti, upplýsingaflæði og endurgjöf.

Á þessu hagnýta námskeiði verður farið yfir mismunandi form og tíðni starfsmannasamtala. Fjallað verður um helstu þætti sem stuðla að því að starfsmannasamtalið verði árangursríkt. Hver er helsti ávinningurinn fyrir vinnustaðinn, stjórnandann og starfsmanninn. Hvernig er hægt að styðja starfsmenn í markmiðasetningu og veita endurgjöf á frammistöðu í starfi. Grunnur að góðu samtali felst í góðri samtalstækni og virkri hlustun og kenndar verða leiðir sem nýtast í samtölum. Fjallað verður um ólíkar væntingar á milli kynslóða um endurgjöf og leiðir til að bæta endurgjöf og hrós.

Námskeiðið hentar vel fyrir alla stjórnendur, mannauðsstjóra, verkefnastjóra og hópstjóra sem vilja ná betri árangri sem stjórnendur og vilja bæta samskipti, upplýsingagjöf og endurgjöf til starfsmanna sinna.

Efni og ávinningur

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Tilgang og markmið með tíðari starfsmannasamtölum.
  • Mismunandi útfærslur starfsmannasamtala.
  • Undirbúning og innleiðingu.
  • Samtalstækni og virka hlustun.
  • Leiðréttandi endurgjöf.
  • Endurgjöf og hrós.

Ávinningur þinn:

  • Aukin þekking á mikilvægi starfsmannasamtala.
  • Hugmyndir að breyttu fyrirkomulagi starfsmannasamtala sem hægt er að byrja strax að vinna með.
  • Betri samtalstækni og hlustun.
  • Aukin hæfni í að leiða starfsmannasamtöl.
  • Aukin hæfni í að veita endurgjöf.
  • Þekking á því hvernig hægt er að ná meiri árangri með starfsmannasamtölum.