Ari Eldjárn x Bergur Ebbi x Tilraunauppistand
Gróska | Sykursalur, Kristínargata 1, 102 Reykjavík Directions
Thu Dec 03 2026 20:00
Ari Eldjárn og Bergur Ebbi eru báðir að undirbúa uppistandssýningar sem frumsýndar verða á næstunni.
Ari verður með sitt árlega Áramótaskop sem nú er haldið í tíunda sinn en Bergur Ebbi fer af stað í Borgarleikhúsinu í janúar með glænýja sýningu sem nefnist Lífsorka. Í tilefni þess munu þeir koma fram, í aðeins eitt kvöld, með svokallað tilraunauppistand.
Á tilraunauppistandi gefst áhorfendum kostur á að hlýða á uppistandsefni í miðju mótunarferli. Sumt virkar, annað ekki, en frumkrafturinn er sannarlega til staðar - ekki síst á tilraunakvöldi hjá tveimur af reynslumestu uppistöndurum landsins sem hafa átt í ríkulegu samstarfi á sviði sköpunar í tvo áratugi.