Ástir, undirferli og afturgöngur í Eyrbyggja sögu
Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions
Tue Jan 26 2027 19:30
Kafaðu ofan í Eyrbyggja sögu, eina merkustu Íslendingasöguna, með Torfa Tulinius.
Eyrbyggja saga er ein merkasta Íslendingasagan, uppfull af litríkum persónum og eftirminnilegum atburðum: berserkir, afturgöngur, forboðnar ástir, bardagar og kveðskapur í hæsta gæðaflokki. Sagan gerist nærri alfarið á Snæfellsnesi, en fáar sögur draga upp jafn fjölþætta og áhrifaríka mynd af lífinu til forna á Íslandi.
Námskeiðið fer fram í formi fyrirlestra, tvo tíma í senn, einu sinni í viku í átta vikur. Kennari fer í gegnum söguna, skýrir valda kafla, setur þá í samhengi við söguna alla og samtímahöfunda hennar.
Námskeiðið er fyrir allt áhugafólk um bókmenntir, kveðskap og sögu Íslands.
Efni og ávinningur
Á námskeiðinu er fjallað um:
- Eyrbyggja sögu.
- Persónur hennar og atburði.
- Lífið á miðöldum og hvernig það endurspeglast í sögunni.
Ávinningur þinn:
- Fróðleikur um merka sögu.
- Bættur skilningur á flóknu bókmenntaverki.
- Góð skemmtun.