Ástir, undirferli og afturgöngur í Eyrbyggja sögu

Ástir, undirferli og afturgöngur í Eyrbyggja sögu

Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions

Wed Jan 27 2027 10:00

Kafaðu ofan í Eyrbyggja sögu, eina merkustu Íslendingasöguna, með Torfa Tulinius.

Eyrbyggja saga er ein merkasta Íslendingasagan, uppfull af litríkum persónum og eftirminnilegum atburðum: berserkir, afturgöngur, forboðnar ástir, bardagar og kveðskapur í hæsta gæðaflokki. Sagan gerist nærri alfarið á Snæfellsnesi, en fáar sögur draga upp jafn fjölþætta og áhrifaríka mynd af lífinu til forna á Íslandi.

Námskeiðið fer fram í formi fyrirlestra, tvo tíma í senn, einu sinni í viku í átta vikur. Kennari fer í gegnum söguna, skýrir valda kafla, setur þá í samhengi við söguna alla og samtímahöfunda hennar.

Námskeiðið er fyrir allt áhugafólk um bókmenntir, kveðskap og sögu Íslands.

Efni og ávinningur

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Eyrbyggja sögu.
  • Persónur hennar og atburði.
  • Lífið á miðöldum og hvernig það endurspeglast í sögunni.

Ávinningur þinn:

  • Fróðleikur um merka sögu.
  • Bættur skilningur á flóknu bókmenntaverki.
  • Góð skemmtun.