Auðvitað elska ég mömmu

Auðvitað elska ég mömmu

Háskolabíó | Salur 2, Hagatorg, 107 Reykjavík Directions

Sun 19.07.2026 19:00

Auðvitað elska ég mömmu

Hvernig er manneskjan sem þú elskar mest, sem er þinn besti vinur en einnig þinn mesti og stærsti óvinur, útsettur til þess að „eyðileggja” lífið þitt með ást sinni? 


Kona sem ætlaði aldrei að vera eins og mamma sín er móðir ungrar dóttur sem er auk þess besta vinkona hennar - en dóttirin er að verða að unglingi og er byrjuð að fjarlægjast móður sína. Móðirin sér sjálfa sig í dóttur sinni og á sama tíma rifjast upp fyrir henni hvernig hún hagaði sér gagnvart sinni mömmu; skömm og eftirsjá, en sömuleiðis pirringur rís á yfirborðið - enda er mamma hennar ennþá til staðar og hættir aldrei að skipta sér af börnunum sínum. 


Segirðu við mömmu þína að þú elskir hana? 
„Já mjög mikið. Segjum það alveg óspart við hvora aðra.”
„Nei. Auðvitað á maður að gera það en ég geri það ekki.” 


Auðvitað elska ég mömmu er glænýtt íslensk leikrit um flækjurnar í samböndum mæðgna. Verkið er unnið upp úr viðtölum og reynslusögum dætra og mæðra.


Leikarar 

  • Birgitta Birgisdóttir 
  • Edda Guðnadóttir 
  • Rafney Birna Guðmundsdóttir 
  • Rósa Guðný Þórsdóttir 


Framleiðsla 

  • Afturámóti 

Afturámóti samanstendur af ungu og upprennandi sviðslistafólki sem hafa haldið uppi sviðslistahúsi síðastliðin tvö sumur í Háskólabíói. Afturámóti hlaut hvatningarverðlaun Grímunnar árið 2025. 


Höfundur og leikstjóri 

  • Karla Aníta Kristjánsdóttir

Aðstoðarleikstjórn 

  • Jón Ólafur Hannesson 

Tónlist og hljóðhönnun 

  • Anna Róshildur 

Sviðshreyfingar 

  • Birta Ásmundsdóttir

Ljósahönnun

  • Anna Kristín


Ljósmyndun

  • Stefanía Elín Linnet


Grafísk hönnun

  • Karla Aníta Kristjánsdóttir


Framleiðslu- og sýningarstjórn

  • Máni Huginsson


Framleiðendur

  • Höskuldur Þór Jónsson
  • Ingi Þór Þórhallsson
  • Karla Aníta Kristjánsdóttir
  • Kristinn Óli S. Haraldsson
  • Máni Huginsson