Babb - Útgáfuhóf í Hvalasafninu!
Whales of Iceland, Fiskislóð 23, 101 Reykjavík Directions
Wed Nov 04 2026 17:00
Í tilefni af útgáfu bókarinnar Babb eftir Arndísi Þórarinsdóttur og Huldu Sigrúnu Bjarnadóttur með myndum eftir Estelle Pollaert, blásum við til útgáfuhófs á Hvalasafninu miðvikudaginn 4. nóvember kl. 17:00.
Takið með ykkur börnin, vini, ömmu og afa og eigið skemmtilega stund saman innan um risa hafsins!
Höfundar lesa upp og árita bækur, léttar veitingar verða í boði og bókin fæst á sérstöku útgáfutilboði. Á milli þess er tilvalið að rölta um safnið, skoða hvalina og velta fyrir sér sjóferðum ævintýrastúlkunnar Helgu Sjafnar.
Við hlökkum til að sjá ykkur!