Baby Rave | Fjölskyldudagskrá Hörpu
Harpa | Hörpuhorn, Hörpuhorn, 101 Reykjavík Directions
Sat Nov 14 2026 14:00
Baby Rave (fyrir allan aldur)
Staður: Hörpuhorn í Hörpu
Dagsetning: Laugardagur 14. nóvember
Tími: Kl. 14:00
Aldur: Allur aldur
Aðgangur: Ókeypis og engin skráning nauðsynleg
Í samstarfi við: Reykjavík Dance Festival
Dans, tónlist og samvera fyrir alla fjölskylduna!
Baby Rave er dansviðburður fyrir börn á öllum aldri og fjölskyldur þeirra þar sem allir eru velkomnir. Börnin kynnast danstónlist frá ýmsum heimshornum og með hjálp ímyndunaraflsins ferðast þátttakendur um heiminn á dansgólfinu.
Markmiðið er að skapa öruggt og opið rými þar sem börn og fullorðnir geta dansað, leikið sér og átt góða stund saman – hvert á sinn hátt. Um leið er sáð fræjum fordómaleysis og lögð áhersla á frelsi, fjölbreytileika og gleði.
Komdu með fjölskylduna og slepptu þér á dansgólfinu í skemmtilegu og vingjarnlegu rave-i fyrir allar kynslóðir!