Bændafundur í Flóa

Bændafundur í Flóa

Félagslundur félagsheimili, Félagslundur, 801 Selfoss Directions

Mon Nov 02 2026 12:00

Bændafundur í Félagslundi í Flóa.

Stjórn Bændasamtakanna ásamt framkvæmdastjóra fara á stjá og heldur bændafundi í félagsheimilum um allt land. Ferðin er árleg og gefur forystu Bændasamtakanna gott veganesti í vinnuna sem fer fram yfir vetrartímann.

Fundirnir hefjast á kynningu frá Bændasamtökunum þar sem formaður, framkvæmdarstjóri og stjórnarmenn fara með tölu og í framhaldinu er opið fyrir framsögur og spurningar. Hefð er fyrir notalegum veitingum á fundunum sem gestir geta gætt sér á á meðan fundi stendur.