BALL-smiðja fyrir ungmenni 13–19 ára

BALL-smiðja fyrir ungmenni 13–19 ára

Edinborg Cultural Center, Aðalstræti 7, 400 Ísafjörður Directions

Thu 27.08.2026 16:00

Ungmennum á aldrinum 13-19 ára er boðið að taka þátt í opinni BALL-smiðju í tengslum við þróun nýs dansverks sem er innblásið af hinu þekkta ævintýri um Öskubusku.

Smiðjan fer fram kl. 16-18:30, fimmtudaginn 27. ágúst.

Í vinnunni við verkið er byggt á sagnaminninu um Öskubusku, stjúpuna, systurnar, prinsinn, fegurðarhugtakið og leitina að hamingju, sem finna má í fjölmörgum menningarheimum og rekja má langt aftur í forneskju. Jafnframt er unnið með, og á móti, frásagnarhefðum klassíska ballettsins og tónsmíð rússneska tónskáldsins Sergeis Prokofievs við Öskubusku frá síðustu öld.

Í smiðjunni verður ungmennum boðið að taka þátt í þróun ákveðins hluta verksins sem fjallar um Ballið í ævintýrinu um Öskubusku.

Dansararnir Erna Ómarsdóttir, Halla Ólafsdóttir og Saga Kjerulf Sigurðardóttir vinna saman að þróun verksins og munu þær stýra smiðjunni. Vikuna 24.–28. ágúst dvelja þær í Edinborgarhúsinu við rannsóknir og æfingar fyrir verkið og verður smiðjan hluti af þeirri vinnu.

Smiðjan er opin öllum ungmennum á aldrinum 13–19 ára sem hafa áhuga á sviðslistum, dansi, tónlistarflutningi, tilraunamennsku og ævintýrum. Þau sem spila á hljóðfæri eru hvött til að taka þau með í smiðjuna, en það er þó alls ekki skilyrði fyrir þátttöku.

Þátttaka í smiðjunni er ókeypis og öllum opin.