Barnabókasmakk 2026
Thu Dec 03 2026 16:30
Viltu fá smá smakk af nýjum barnabókum? 🫣
Í aðventunni fáum við heimsókn frá tveimur barnabókahöfundum sem kynna fyrir okkur nýjustu bækurnar sínar.
Bergrún Íris Sævarsdóttir les upp úr Áður en ég sofna og við heyrum frá nýju skólaári í Skrímslabæ í bókinni Skelfing í Skrímslabæ.
Ævar Þór Benediktsson les upp úr nýju bókinni Teiknimyndaránið og kynnir okkur fyrir bestu vinunum Halla og Tóta og ævintýrum þeirra.
Jólalegar veitingar að lestri loknum! 🍪📚